Um markþjálfun og mig sem markþjálfa

 

Hvað er markþjálfun?
Markþjálfun er samtalstækni sem miðar að því að hjálpa þér að finna rétta stefnu og sjá lausnirnar innra með þér. Þannig er markþjálfi liðsmaður í þínu ferðalagi. Hann beinir þér að kjarna málsins með kraftmiklum spurningum og skapar rými fyrir vöxt og viðhorfsbreytingar.

Markþjálfun gæti verið fyrir þig ef þú...

  • ert leitandi í lífinu og finnst eitthvað vanta
  • vilt bæta eitthvað og efla í fari þínu eða lífi
  • þarft að taka ákvarðanir en finnst það erfitt
  • vilt finna draumana þína og láta þá rætast
  • vilt fá betri yfirsýn, skipulag og stefnu
  • vilt kynnast þér betur, bæta líf þitt og auka hamingju

 

Ég heiti Hulda Ólafsdóttir og er með alþjóðlega hæfnisvottun ACC frá ICF og lauk framhaldsnámi í markþjálfun 2021 hjá Evolvia.

Ég á og rek fyrirtækið Hjartalag en markmið Hjartalags er að breiða út hlýju, kærleika og alúð með ljóðum, gullkornum og jákvæðum boðskap. Tilgangurinn er að auka samstöðu, jákvæðni og uppbyggingu í samfélaginu.

Ég fór í markþjálfunarnám til að efla sjálfa mig í lífi og starfi og nú langar mig til að nýta þekkinguna til að hjálpa þér til að vaxa.

Ég er einnig menntaður grafískur hönnuður, klínískur dáleiðari/hugræn endurforritun og reikimeistari.